Skilmálar – HS Bílaréttingar og sprautun ehf.

Almennt.

Skilmálar þessir gilda um alla þjónustu m.a vinnu við tjónamat, viðgerðir á ökutækjum, geymslu ökutækja og önnur tilfallandi verk sem HS Bílaréttingar og Sprautun ehf. (hér eftir „verkstæðið“) veitir viðskiptavinum sínum.

Með því að afhenda ökutæki til verkstæðisins samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa í heild sinni.

Verkbeiðni, tjónamatsgerð og tímabókun.

Forvinna við vinnslu tjónamats hefst þegar viðskiptavinur kemur á verkstæðið í tjónaskoðun, nema um annað sé samið.

Kostnaður við tjónamatið sjálft samsvarar einni (1) klukkustund samkvæmt gildandi tímagjaldi, auk virðisaukaskatts.

Sé um að ræða tryggingatjón er kostnaður þessi greiddur af viðkomandi tryggingafélagi.

Endanleg vinna við tjónamat og varahlutapöntun hefst ekki fyrr en viðskiptavinur eða tryggingafélag fyrir hans hönd hefur samþykkt verðáætlun skriflega eða með sannanlegum hætti.

Verðáætlanir eru settar fram fyrir hvert verk svo kaupandi þjónustu hafi verðhugmynd vegna vinnu við tiltekið verk.

Komi í ljós eftir að verk er hafið að viðgerðarþörf er umfram það sem áætlað var, áskilur verkstæðið sér rétt til að endurskoða áætlunina.

Ef fyrirséð er að verð muni hækka verulega frá útgefinni verðáætlun mun verkstæðið tilkynna neytanda um það án tafar og óska eftir samþykki neytanda fyrir áframhaldandi vinnu á grundvelli nýrrar áætlunar. Ef slíkt samþykki fæst ekki, á neytandi rétt á að fá bifreiðina afhenta gegn greiðslu fyrir þá vinnu sem þegar hefur verið unnin.

Tímabókun fer eftir stöðu á verkstæði og varahlutastöðu hjá umboðum hverju sinni.

Áætlaður viðgerðartími er gefinn upp til viðmiðunar og byggir á afkastagetu verkstæðis og aðgengi að varahlutum á þeim tíma sem áætlun er gerð.

Verkstæðið leitast við að ljúka verki innan sanngjarns tíma og mun upplýsa viðskiptavini um allar fyrirsjáanlegar tafir. Verkstæðið ber ekki ábyrgð á töfum á verki sem stafa af óviðráðanlegum og ófyrirsjáanlegum ytri atvikum, þ.á.m. varahlutaskorti. 

Allar óskir um breytingu á tímabókun skulu berast símleiðis eða á netfangið tjonaskodun@hsretting.is

Komi viðskiptavinur ekki með bifreið til viðgerðar á tilgreindum tíma, án þess að færa tímann eða láta vita með a.m.k. sólarhrings fyrirvara áskilur verkstæðið sér rétt til að innheimta vinnugjald sem nemur einni (1) klukkustund samkvæmt gildandi tímagjaldi, auk virðisaukaskatts ef um einkatjón er að ræða. Í tryggingatjónum ber viðkomandi félag þennan kostnað.

Breyttar bifreiðar og óupprunalegir hlutir.

Ef bifreið hefur verið breytt frá upprunalegu ástandi framleiðanda með einhvers konar aukahlutum, útlitsbreytingum eða öðrum tilheyrandi máta, áskilur verkstæðið sér rétt á að hafna því að taka slíkt verk að sér  án frekari útskýringa.

Ef verkstæðið tekur svoleiðis verk að sér nær ábyrgð verkstæðisins eingöngu til þeirra vinnu sem það sjálft framkvæmir á tilheyrandi ökutæki og þess efnis sem verkstæðið sjálft útvegar og/eða velur. Ef galla má rekja til varahlutar sem viðskiptavinur krafðist sérstaklega notkunar á eða lagði sjálfur til ber verkstæðið ekki ábyrgð á þeim galla enda hafi verkstæðið gert viðskiptavini það ljóst fyrir fram.

Bílastæði og ábyrgð.

Ökutæki sem eru staðsett á bílastæði HS Bílaréttingar og Sprautun ehf, eru þar á ábyrgð eiganda og umráðamanna þeirra.

Verkstæðið ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á ökutækjum sem hafa verið afhent verkstæðinu nema rekja megi tjónið til vanrækslu af hálfu verkstæðisins.

Þegar búið er að tilkynna viðskiptavini að bifreið sé tilbúin þá ber eigandi ábyrgð á henni á bílaplani.

Verkstæðið ber enga ábyrgð á lausafjármunum í bifreiðum.

Greiðslur.

Greiða skal reikninga í samræmi við þá skilmála sem fram koma á reikningum verkstæðisins.

Lög og varnarþing.

Skilmálar þessir lúta Íslenskum lögum, þar sem ákvæði þessara skilmála víkja frá rétti neytanda samkvæmt lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup gilda ákvæði laganna framar ákvæðum skilmálans.
Ef ágreiningur er uppi um þjónustu verkstæðisins er bent á að neytendur geta vísað máli til úrskurðarnefndar vöru- og þjónustukaupa eða til dómstóla. Dómsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.