Forsíða / Þjónusta / CABAS tjónamat

CABAS tjónamat

Tjónamatið er fyrsta skrefið. Við skoðum bílinn, metum tjónið í CABAS og gerum verðáætlun áður en viðgerð hefst.

Tjónaskoðun á bíl hjá HS

Hvað felst í tjónamati?

Þú bókar tíma í tjónaskoðun á netinu eða mætir á staðinn. Við skoðum bílinn og vinnum tjónamatið í CABAS.

Vinna við viðgerð og pöntun varahluta hefst þegar þú, eða tryggingafélagið fyrir þína hönd, hefur samþykkt verðáætlunina.

  • Tjónaskoðun á verkstæðinu á Miðhellu 2
  • Tjónamat unnið í CABAS
  • Verðáætlun fyrir hvert verk
  • Við látum vita án tafar ef áætlunin breytist

Hvað kostar tjónamat?

Kostnaður við tjónamat samsvarar einni klukkustund samkvæmt gildandi tímagjaldi, auk virðisaukaskatts. Ef um tryggingatjón er að ræða greiðir tryggingafélagið þann kostnað. Sjá nánar í skilmálum.

Hvernig er ferlið?

Þrjú skref frá tjóni að viðgerðum bíl

01

Lentir þú í tjóni?

Tilkynna tjón til tryggingafélags.

02

Tjónaskoðun

Hægt er að bóka tíma hér eða mæta á staðinn.

Bóka tíma ↗
03

Þú mætir á bókuðum degi

Bílaleigubíll getur beðið þín á staðnum, sé þess óskað.

Lentir þú í tjóni?

Bókaðu tjónaskoðun á netinu eða komdu við hjá okkur á Miðhellu 2 í Hafnarfirði.