Forsíða / Þjónusta / Tjónaskoðun á netinu

Tjónaskoðun á netinu

Þú sendir okkur myndir af tjóninu úr símanum og við metum það. Þú þarft ekki að mæta á verkstæðið í skoðun.

Tjónaskoðun á bíl hjá HS

Svona virkar það

Þrjú skref í símanum

01

Skráðu bílnúmerið

Þú byrjar á bókunarsíðunni og skráir bílnúmerið.

02

Taktu myndir af tjóninu

Þú tekur myndirnar í símanum og færð leiðbeiningar skref fyrir skref.

03

Við metum tjónið

Við metum tjónið út frá myndunum og höfum samband.

Tvær leiðir í tjónaskoðun

Veldu þá leið sem hentar þér

Engin heimsókn

Tjónaskoðun á netinu

Þú sendir okkur myndir af tjóninu og við metum það án þess að þú þurfir að mæta.

1 Skráðu bílnúmerið á bókunarsíðunni.
2 Taktu myndir af tjóninu í símanum.
3 Við metum tjónið og höfum samband.
Hefja tjónaskoðun á netinu ↗

Á verkstæðinu

Bóka tíma og mæta

Þú velur tíma og kemur með bílinn til okkar á Miðhellu 2.

1 Skráðu bílnúmerið og veldu tíma á bókunarsíðunni.
2 Mættu með bílinn á bókuðum tíma.
3 Við skoðum bílinn á staðnum og metum tjónið.
Bóka tíma í tjónaskoðun ↗

Hvað gerist svo?

Þegar tjónamatið liggur fyrir gerum við verðáætlun. Viðgerð og pöntun varahluta hefst þegar þú, eða tryggingafélagið fyrir þína hönd, hefur samþykkt hana.

  • Mundu að tilkynna tjónið til tryggingafélagsins þíns
  • Tjónamat unnið í CABAS
  • Þú mætir með bílinn á bókuðum degi í viðgerð
  • Bílaleigubíll getur beðið þín á staðnum, sé þess óskað

Nánar um tjónamatið

Sjá CABAS tjónamat og skilmála.

Lentir þú í tjóni?

Bókaðu tjónaskoðun á netinu eða komdu við hjá okkur á Miðhellu 2 í Hafnarfirði.